Dags: 30.03.2006 11:02
Á morgun, föstudag, fer fram í Skautahöllinni í Laugardal hið svokallaða Financial Cup í íshokkí, en þarna taka þátt nokkur erlend íshokkílið sem samanstanda af leikmönnum er vinna í fjármálageiranum. Þannig koma lið frá Toronto, Helsinki, Stokkhólmi og Wall Street (New York). Auk þess verður Reykjavík með eitt lið. Í þessum hópi er að finna marga mjög góða íshokkíspilara og verður eflaust gaman að fylgjast með mótinu. Fyrsti leikurinn er á milli Reykjavíkur og Stokkhólms og hefst hann kl. 11:00. Mótinu lýkur svo upp úr 22:30 annað kvöld.
Dagskrá mótsins er sem hér segir:
11.00 Stockholm - Reykjavik
12.00 Helsinki - Wall Street
13.00 Toronto - Stockholm
14.00 Reykjavik - Wall Street
15.00 Toronto - Helsinki
16.00 Wall Street - Stockholm
17.00 Helsinki - Reykjavik
18.00 Wall Street - Toronto
19.00 Stockholm - Helsinki
20.00 Reykjavik - Toronto