Dags: 18.03.2006 14:37
Það verður ekki annað sagt en að á ýmsu hafi gengið hjá U18 landsliðinu. Nú hafa strákarnir leikið þrjá leiki sem allir hafa tapast, gegn Króötum (1-11), Litháum (1-9) og nú síðast gegn Englendingum (2-14). Á sama tíma hafa mikil veikindi hrjáð liðið og í leiknum gegn Englandi í dag keyrði um þverbak því Ísland gat einungis teflt fram 8 leikmönnum sökum veikinda! Í ljósi þess eru úrslitin gegn Englandi, sem komu úr fyrstu deild og eru með mjög sterkt lið, frábær. Eðlilega dregur þetta þó máttinn úr liðinu en nú er að duga eða drepast því á morgun mæta þeir Mexíkó sem líka hefur tapað öllum sínum leikjum til þessa. Strákarnir munu áreiðanlega gera sitt besta og vonandi geta þeir styrkt hópinn fyrir þann leik. Áfram Ísland!