Fréttir

Total items: 1194

SR hlýtur styrk úr Íþróttasjóði

Dags: 15.03.2006 10:28


Nýlega veitti menntamálaráðherra íshokkídeild SR styrk úr svokölluðum Íþróttasjóði, en þetta er í annað sinnið er SR hlýtur slíkan styrk úr Íþróttasjóði til eflingar starfseminnar. Styrkurinn er veittur til að standa straum af uppbyggingastarfi innan deildarinnar og fjármagna m.a. kaup á útbúnaði fyrir byrjendur. Nú þegar hefur verið fjárfest í mörgum settum af íshokkíbúnaði fyrir byrjendur, en þeir eiga núna þess kost að leigja þennan útbúnað er þeir hafa lokið Skautaskólanum. Þessi nýjung hefur strax slegið í gegn og nýtur mikilla vinsælda, en ekki er slæmt fyrir foreldra að bíða með kaup á búnaði þangað til barnið er alveg tilbúið í alvöruna!