Dags: 13.03.2006 22:16
Í morgun hélt landslið Íslands U18 af stað til Litháen til að taka þátt í heimsmeistaramóti annarrar deildar. Í kvöld taka þeir æfingu í Kaupmannahöfn en fljúga svo til Litháens í fyrramálið. Mikið hefur gengið á í undirbúningi þess, leikmenn meiðst og aðrir veikst, en engu að síður er mikill hugur í leikmönnum. Lið Íslands er nokkuð ungt en um leið mjög efnilegt, og gott sambland af skemmtilegum leikmönnum úr SR, SA og Birninum. Ísland leikur í riðli með Englandi, Ástralíu, Litháen, Króatíu og Mexíkó, en fyrsti leikur Íslands er við Króata á miðvikudaginn. Ed Maggiacomo er þjálfari U18 landsliðsins en honum til aðstoðar er Rúnar Rúnarsson. Fararstjóri er svo Árni Albertsson, Sigurjón Sigurðsson tækjastjóri, og sem fyrr er það Gauti Arnþórsson sem er læknir liðsins. Nú er bara að senda strákunum baráttukveðjur. Sjá má lið Íslands hér.