Fréttir

Total items: 1194

SR tapaði í 2. flokki

Dags: 01.03.2006 10:52


Í gærkvöldi heimsóttu SR-ingar Bjarnarmenn í Egilshöllinni í Íslandsmóti 2. flokks, en þetta var síðasti innbyrðisleikur þessara liða í keppninni. Björninn vann leikinn 9-5. Leikurinn var lengst af frekar jafn en Björninn þó ávallt með frumkvæðið. SR komst þó yfir, 3-2, en í kjölfarið fylgdi slæmur kafli hjá SR með fjórum mörkum frá Birninum. Staðan þá orðin 6-3 Birninum í vil. Þá tóku SR-ingar við sér, sóttu grimmt og náðu að minnka muninn í 6-5. Þeir misstu þetta svo frá sér undir lokin með tveimur mörkum frá Birninum, eftir slæm varnarmistök. Í stöðunni 8-5 tók Ed þjálfari markmannin af velli til að auk sóknarþungann, og þrátt fyrir nokuð sæmileg færi tókst ekki að laga stöðuna. Í staðinn bætti Björninn við einu marki í tómt markið.

Leikurinn var mjög skemmtilegur á að horfa einsog alltaf þegar 2. flokkur spilar. Leikmenn beggja liða bera virðingu fyrir hvorum öðrum, og því leikurinn ávallt prúðmannlega leikinn, þótt keppnisskapið sé fyrir hendi hjá báðum liðum. SR hefur bætt sig mikið í þessum flokki eftir áramótin, en það kom þó glögglega fram í þessum leik reynsluleysi SR-inga, sérstaklega varnarlega; Björninn getur teflt fram nokkrum leikmönnum sem hafa verið að spila nánast reglulega með meistaraflokki á meðan aðeins tveir útispilarar SR spila með meistaraflokki. En hjá því verður ekki litið að Sergei hefur búið til stórskemmtilegt lið í þessum aldursflokki og í ljósi þess eru það mikil vonbrigði að hann hafi ekki fengið tækifæri til að stýra áfram U18 ára landsliðinu, einsog hann hefur gert með glæsibrag undanfarin ár. Í staðinn mun Ed þjálfari SR taka þetta verkefni að sér, en hann hljóp í skarðið á síðustu stundu þegar ljóst var að Sergei fengi ekki þetta tækifæri. Ed mun hins vegar standa sig, enda vanur maður á ferðinni.