Fréttir

Total items: 1194

Kanada Ólympíumeistarar í kvennaíshokkí

Dags: 21.02.2006 15:32


kanada_gull2006konur.jpg

Kanada bar sigurorð af Svíum í úrslitaleik um Ólympíugullið í íshokkí kvenna í gær en þær kanadísku unnu öruggan sigur , 4-1. Einsog við höfum séð á RUV þá er kanadíska kvennalandsliðið gríðarlega öflugt og innanborðs eru nokkrir leikmenn sem eru í sérflokki, einsog t.d. Hayley Wickenheiser, sem lék eitt tímabil með karlaliði í finnsku annarri deildinni. Svíar áttu ekki mikla möguleika í þessum leik en áttu þó góða spretti, sérstaklega í 3. lotu.