Dags: 21.02.2006 09:02

Á dögunum var undirritaður samstarfssamningur milli íshokkídeildar SR og Landsbanka Íslands. Með þessum samningi styrkir LÍ deildina fjárhagslega, en þessi styrkur rennur beint í barna- og unglingastarf deildarinnar. Auk þess kemur fram í samningnum að fyrir hvern iðkanda sem skráir sig í Krakkaklúbb, Sportklúbb eða Námu Landsbankans koma til greiðslu 1.500.kr. Þessari greiðslu er skipt í tvennt, annars vegar fær viðkomandi iðkandi kr. 500 greiddar inn á nýstofnaðan reikning sem afslátt af æfingagjöldum og hins vegar fær foreldraráð flokks viðkomandi iðkanda kr. 1.000 greiddar í sinn hlut. 1.500 kr. eru þó ekki greiddar fyrr en búið er að leggja a.m.k. kr. 1.000 inn á reikninginn. Auk þess fá allir sem eiga eða stofna reikning í LÍ íþróttatösku merkta félaginu og LÍ. SR hvetur að sjálfsögðu alla iðkendur til að stofna reikning í LÍ.