Fréttir

Total items: 1194

Óvænt úrslit á Vetrarólympíuleikunum

Dags: 19.02.2006 22:47


sviss_markmadur_sigur.jpg

Íshokkíkeppnin á Vetrarólympíuleikunum stefnir í að verða söguleg. Ekki einasta slógu sænsku stelpurnar þær bandarísku út í undanúrslitunum, heldur ætlar keppnin í karlaflokki einnig að verða söguleg. Þannig hefur Bandaríkjamönnum gengið herfilega hingað til, gerðu jafntefli við Letta en töpuðu fyrir Slóvökum og Svíum, og eiga þ.a.l. ekki mikla möguleika á að komast í undanúrslit. Þá hefur gengi Kanada verið langt undir væntingum en á laugardag töpuðu þeir fyrir Sviss, 2-0, og á sunnudaginn töpuðu þeir svo fyrir Finnum með sömu markatölu. Þetta verður að teljast ótrúlegt því bæði Kanada og BNA tefla fram sínum sterkustu leikmönnum úr NHL. Þó var val Kanadamanna mikið gagnrýnt heima fyrir þar sem eftir sátu ungu stjörnurnar, Sidney Crosby, Jason Spezza og Erik Stahl, sem hafa slegið rækilega í gegn í vetur, en í staðinn valdir "gamlir" reynsluboltar einsog t.d. Kris Draper. Þá hefur gífurlega komið á óvart frammistaða Sviss, og það sama má segja um Finna og Slóvaka sem hafa unnið alla fjóra leiki sína til þessa. Þessar þjóðir eru þó þekktar fyrir að leika með hjartanu á öllum stórmótum.

Myndin sýnir leikmenn fagna sigri sínum á Kanada á laugardaginn