Fréttir

Total items: 1194

Allt galopið í Íslandsmóti 2. flokks

Dags: 17.02.2006 14:53


Í gærkvöldi tókust á SR og Björninn í Íslandsmóti 2. flokks, en þessi leikur fór fram í Laugardalnum. SR-ingar sýndu góðan leik og unnu 6-4, og fylgdu þannig eftir góðum sigri á SA um síðustu helgi. Leikurinn var mjög skemmtilegur á að horfa, hraður og oft brá fyrir stórgóðu spili hjá báðum liðum. Þá var markvarslan, sérstaklega hjá SR, stórgóð. Þrátt fyrir góðan sigur þurftu SR-ingar svo sannarlega að hafa fyrir þessu því Björninn er með gott og vel spilandi lið í þessum aldursflokki. Sérstaklega er varnarleikur þeirra sterkur. Leikurinn var prúðmannlega leikinn, eins og þessir 2. flokks leikir eru yfirleitt alltaf, fá brot en þeir mun meira um leikgleði. Flestir þessara stráka eiga þó erfiða helgi framundan, því í dag eru U18 æfingabúðirnar á fullri ferð undir stjórn Ed Maggiacomo, SR mætir svo SA í þessum flokki annað kvöld, og á sunnudagsmorgun mætir SA svo Birninum í Egilshöll. Það verða því væntlega þreyttir strákar sem mæta í skólann á mánudagsmorgun.

Staðan í þessum flokki í Íslandsmótinu er galopin því liðin þrjú hafa unnið og tapað leikjum á víxl.

Mörk og stoðsendingar

SR: Þorsteinn 3/3, Úlfar 2/2, Ragnar 1/0 og Egill 0/3.

Björninn: Hjörtur 2/1, Gunnar 1/0, Andri 1/0 og Gunnar Örn 0/1