Dags: 15.02.2006 00:17

Búið er að uppfæra myndahluta á vef Skautafélagsins. Ómar Þór Edvardsson hefur af miklum myndarskap tekið töluvert af myndum á þeim mótum sem hann hefur fylgt félaginu undanfarið. Hægt er að sjá með því að fara í flokkinn Myndir og þar undir Brynjumót er ný uppfærsla og einnig undir Myndir yngri flokka. Þar er hægt að finna myndir af leikjum 3.flokks sem var fyrir áramót.