Fréttir

Total items: 1194

SR með góðan sigur á SA í 2.flokki

Dags: 12.02.2006 13:28


Í gærkvöldi tók SR á móti SA í Íslandsmóti 2. flokks en þetta var fyrsti innbyrðis leikur þessara liða í vetur. SR-ingar höfðu átt dapran dag gegn Birninum í síðasta leik sínum en fyrir þennan leik hafði SA hins vegar lagt Björninn að velli á Akureyri. Það var augljóst á SR-ingum að þeir ætluðu að gera mun betur en í síðasta leik sínum. Þeir hófu leikinn af miklum krafti og pressuðu Akureyringana vel og komust í 3-0 áður en SA náði að minnka muninn í 3-2. SR hélt þó áfram uppteknum hætti, missti aldrei dampinn, og náði aftur góðri forystu, 5-3, og komust síðan í 8-3 seint í leiknum. SA náði svo að laga stöðuna undir lok leiksins en leikurinn endaði 9-5. Þetta var bráðfjörugur leikur á að horfa, reyndar æði mikið um brottvísanir, sérstaklega undir lok leiksins. SR liðið sýndi það í þessum leik að þeir geta spilað miklu betur en þeir hafa áður sýnt í vetur, en allt annað og betra var að sjá til liðsins. Allir leikmenn lögðu sig fram og lék af krafti, þar sem sjálfstraustið sat í fyrirrúmi. Þeir Úlfar og Þorsteinn voru gríðarlega öflugir í þessum leik og léku við hvern sinn fingur, og þá átti Pétur frábæran leik. Þá má heldur ekki gleyma vörninni sem átti mjög góðan dag með þá Gísla, Sindra, Tuma, Jakob, Ægi og Sturlu í fararbroddi - staðsetningar miklu betri og sendingar fram völlinn einnig. Sérstaklega var þetta góður dagur hjá Gísla og Sturlu. Það sem skipti þó öllu máli í þessum leik er breiddin hjá SR og eiga allir leikmenn þess hrós skilið fyrir góðan leik. Þá má heldur ekki gleyma framlagi "heitasta" stuðningsmann SR, Vestfirðingnum Jóni ísmanni, sem hvatti strákana til dáða á sinn "hægverska" hátt strax frá byrjun.

Mörk og stoðsendingar: (liggur ekki fyrir)