Dags: 09.02.2006 02:00

Í kvöld eigast við sunnan liðin tvö. Ekki hefur Björninn haft árangur sem erfiði þetta tímabil gegn SR. Gríðarlega sterk vörn og góður sóknarleikur hefur skilað SR sigri í hvert skipti. Eitt helsta og besta vopna Bjarnarmanna er markvörðurinn Alexi sem hefur varið hreint ótrúlega í allan vetur. En það er ekki spurning um hvort heldur hvenær SR-ingar ná að skjóta pekkinum inn fyrir hinn magnaða markvörð. En enga að síður hafa þessir leikir verið góð skemmtun þar sem Björninn hefur nánast alltaf náð að velgja þeim blákklæddu, úr Laugardalnum, vel undir uggum.
Það er von þess sem skrifar að Bjarnarmenn mæti með allan sinn mannskap, heilan, þar sem þeir hafa haft sína bestu menn á sjúkralista undanfarinn misseri. Það dylst engum að þeir Bjarnarmenn eiga eflaust eftir að veit SR-ingum góða keppni ef þeir mæta með allan sinn mannskap í leik og það er von á því í kvöld.
Rétt er að taka það fram að leikurinn hefst kl. 20:30. Við hvetjum áhugamenn um íshokkí að mæta á leikinn, því satt best að segja hefur mætingin á heimaleiki SR verið treg í vetur, sem er í reynd furðulegt þar sem sjaldan höfum við séð eins gott spil hjá SR og í vetur - þessir strákar eiga það inni að vel sé mætt á þeirra leiki.