Fréttir

Total items: 1194

Stórsigur SR á Birninum

Dags: 24.01.2006 22:37


Það fór ekki milli á mála hvaða lið getur leikið besta hokkíið á Íslandi í dag, er SR mætti Birninum í gærkvöldi í Íslandsmóti karla. SR-ingar hafa átt marga góða leiki í vetur en í þessum leik sýndu þeir fjölmörgum áhorfendum í Egilshöllinni að íshokkí getur verið skemmtun af besta tagi er þeir lögðu Björninn 16-4. Ed þjálfari SR-inga greip til þess ráðs fyrir þennan leik að endurraða í sóknarlínurnar og það virtist sannarlega skila góðum árangri. SR-ingar byrjuðu strax af miklum krafti og fljótlega varð ljóst að þetta yrði langt kvöld fyrir Björninn. SR pressaði mjög vel og flæðið í leik þeirra var mikið og hraðinn eftir því. Og mörkin létu ekki á sér standa en staðan eftir fyrstu lotu var 5-0 SR í vil. SR hélt síðan uppteknum hætti í annarri lotu með sínu hraða spili og er uppi var staðið var staðan orðin 11-2. SR hægði aðeins á sér í þriðju lotu, þurfti oft að leika manni færri, sem virtist þó ekki skipta miklu máli því pressan hélt áfram þrátt fyrir það. Lokatölur 16-4. Í þessum leik kom glögglega í ljós hversu mikils virði það er að geta teflt fram þremur sterkum sóknarlínum, með leikmenn sem allir virðast í mjög góðri æfingu og leikformi. Ekki skemmir svo fyrir að skemmtilegu einstaklingsframtaki eða sóknartilburðum bregður oft fyrir, enda innan liðsins leikmenn með sérlega góða tækni. Þá styrkir liðið leikgleðin hjá strákunum og sjálfstraustið. SR-ingar voru því alltof stór biti fyrir Björninn sem sá því aldrei til sólar í þessum leik.

Það er varla sanngjarnt að tilgreina sérstaklega leikmenn í liði SR sem eiga hrós skilið því allt liðið lék vel. Sóknarmennirnir áttu góðan dag en gaman var að sjá hversu fljótt Rúnar fellur inn í liðið; einsog hann hafi alltaf spilað með Gauta og Helga! Þá verður Andy alltaf sterkari og sterkari en fáir leikmenn leika eins mikið fyrir liðið og hann. Frábær leikmaður þarna á ferðinni, einsog Tékkarnir tveir, Mirek og Zdenek. Þá má heldur ekki gleyma stórgóðri frammistöðu Kára og Guðmundar í vörninni sem átti einn sinn besta leik í langan tíma. Með þessu áframhaldi er liðið á réttri leið enda hefur mjög vel verið haldið utan um meistaraflokk SR; bæði innan vallar og utan. Þökk fyrir góða skemmtun!

Mörk og stoðsendingar: sjá síðar