Fréttir

Total items: 1194

Ísland með góðan sigur á Tyrkjum

Dags: 07.01.2006 12:49


Í gær mætti U20 lið Íslands Tyrkjum í sínum öðrum leik á Heimsmeistaramótinu. Ísland vann þar öruggan sigur, 16-1, þar sem Emil Alengard skoraði 5 mörk.  Litháen vann síðan Búlgariu 13-0 og af þessum úrslitum að dæma er ljóst að lið Íslands og Litháen munu keppa um efsta sætið í riðlinum takist þeim að vinna Búlgaríu, en þeir mæta þeim á morgun. Stig Íslands: Emil 5/2, Birkir 2/4, Gauti, 2/2, Úlfar 2/2, KArl 1/3, Arnþór 1/2, Jón 1/2, Gunnar 1/1, Þorsteinn 1/0, Elmar 0/1, Sindri 0/1 og Steinar Páll 0/1. Nánari tölfræði um leikinn má nálgast á heimasíðu ÍHÍ (sjá hér).