Dags: 05.01.2006 17:25
Íslenska U20 ára landsliðið átti ekki í miklum erfiðleikum í sínum fyrsta leik er þeir mættu Armenum í Heimsmeistaramóti 3. deildar í Litháen í gær. Ísland vann stórsigur á þeim Kákasusmönnum, 50-0! Enda þótt Armenía sé eitt af gömlu Sovét lýðveldunum skilaði það sér engan veginn í leik þeirra - ekkert rússneskt við spil þeirra og frammistöðu. Erfitt er að meta styrkleika íslenska liðsins út frá þessum leik en víst er að þeir eiga eftir að mæta erfiðari andstæðingum í þessum riðli. En þeir fóru glæsilega af stað. Flest mörk Íslendinga skoruðu þeir Emil Alengard (9), Jón Hallgrímsson (8), Gauti Þormóðsson (7), Þorsteinn Björnsson (6), Sindri Már Björnsson (4) og Úlfar Andrésson (3). Frekari tölfræði má nálgast á heimasíðu ÍHÍ hér.