Dags: 24.12.2005 00:31
Jón Benedikt Gíslason og Birna Baldursdóttir voru útnefnd af stjórn ÍHÍ íshokkíleikmenn ársins en þau verða fulltrúar íshokkís í vali á Íþróttamanni ársins sem fram fer 3. janúar n.k. í lokahófi ÍSÍ. Bæði koma þau frá Skautafélagi Akureyrar og eru verðugir handhafar þessa titils. Jón hefur í vetur spilað með liði Nordic Vikings í Asíudeildinni og verið lykilmaður í landsliði Íslands. Birna fer fyrir hinu sterka kvennaliði SA. SR-ingar óska þessum leikmönnum til hamingju með nafnbótina. Sjá nánar á heimasíðu ÍHÍ hér.