Dags: 09.12.2005 00:25
SR-ingar tóku á móti Birninum í Íslandsmóti karla í gærkvöldi en þessi leikur fór fram í Laugardalnum. Ekki virtist tap SR gegn SA um síðustu helgi sitja í leikmönnum SR því þeir áttu skínandi leik og sigruðu Björninn örugglega, 10-3. Leikurinn var lengst af hraður og skemmtilegur en SR sló tóninn strax eftir 20 sek er Stefán skoraði gott mark eftir glæsilegan samleik. Björninn náði að jafna eftir 3 mín eftir góða pressu. Þeir Grafarvogsmenn spiluðu af miklum krafti fyrstu 10 mín lotunnar en síðan virtist smátt og smátt draga af þeim. Steinar Páll kom SR yfir í 2-1 en ekki var meira skorað í fyrstu lotunni. SR byrjaði hins vegar aðra lotu á kappkeyrslu og nýttu sér mikinn doða í varnarleik Bjarnarins en á 7 mín kafla skoraði SR 5 mörk og komst í 7-1. Þessi kafsigling gerði út um vonir Bjarnarins að komast aftur inn í leikinn en þeir náðu þó að klóra í bakkann með einu marki. Staðan 7-2 eftir tvær lotur. Þriðja lotan var minni skemmtun fyrir áhorfendur, mikið um kjánalega brottrekstra sem tóku allt flæði úr leiknum og svo virtist sem leikurinn ætlaði að fjara út án mikillar skemmtunar. SR-ingar tóku sig þó á og skoruðu 3 góð mörk áður en leikurinn var úti. Góður sigur í höfn, 10-3, þar sem SR-ingar sýndu að brotlendingin um síðustu helgi var bara fjarlæg minning. SR liðið í heild átti góðan dag, oft brá fyrir hröðu og hugmyndaríku spili og baráttan var til staðar. Kannski er ekki sanngjarnt að tilgreina sérstaklega leikmenn sem áttu góðan dag í liði SR en leikmenn einsog Gauti og Sindri Már áttu mjög góðan leik, sífellt ógnandi. Sama má segja um Andy, Zdenek og Mirek sérstaklega sem átti einn sinn besta leik í vetur. Þá átti Aron markvörður góða innkomu í þriðju lotu og Stefán markvarðarhrellir kemur sífellt á óvart með mikilli útsjónarsemi í markaskorun. Þá var varnarleikur liðsins vel skipulagður og fumlaus. og það styrkir óneitanlega SR liðið að geta teflt fram þremur, vel spilandi línum sem skila sínu hlutverki með sóma. Björninn kom nokkuð á óvart í þessum leik því búast mátti við miklu meiri baráttu af þeirra hálfu, sérstaklega í ljósi þess að þeir eiga í harðri baráttu við SA um sæti í Úrslitakeppninni. Þeir eiga miklu meira inni og munu sýna það þegar á reynir.
Dómgæslan í leiknum var með ágætum en segja má að í flestöllum leikjum í vetur hafi hún verið til fyrirmyndar. Við getum nú teflt fram prýðisdómurum á borð við Helga Pál, Snorra og Michael og yngri, efnilegir dómarar eru að marka sín spor. Þessi staða endurspeglar þá þróun sem sjá má í íslensku hokkí að leikmenn og þjálfarar einbeita betur og betur að leiknum, en ekki að þeim þáttum sem koma spilamennsku þeirra ekkert við.
Áður en þessari lýsingu lýkur verður að minnast á hina glæsilegu leikskrá SR-inga sem gefin er út fyrir hvern leik. Hún er unnin af Carol Maggiacomo, konu Eds þjálfara, og er öll hin vandaðasta. Að þessu sinni voru allir leikmenn SR komnir með jólasveinahúfu í tilefni jólanna, en ekki virtist þetta uppátæki hafa neikvæð áhrif á leikmenn!
Skot á mark: SR 65 en Björninn 28.
Mörk og stoðsendingar:
SR: Mirek 3/3, Stefán 2/3, Zdenek 2/2, Steinar Páll 1/1, Úlfar 1/0, Svavar 1/0, Gauti 0/2 og Andy 0/1.
Björninn: Brynjar 2/1, Kolbeinn 1/2 og Sergei 0/1.