Dags: 05.12.2005 22:36

Margt sérkennilegt á sér stað í NHL deildinni en eitt er það sem vekur sérstaklega umtal þessa dagana en það er frammistaða "gamla" mannsins í marki Ottawa Senators, Dominik Haseks. Sjaldan hefur NHL deildin orðið vitni að eins óvenjulegum markmanni og Hasek þykir, með sinn stíl sem er engum líkur. Hasek er nú að leika sitt 14. tímabil í NHL deildinni eftir að hafa tekið sér tveggja ára hvíld. Nú er hann fertugur (verður 41 í janúar n.k.) og hefur sjaldan leikið betur. Þannig hefur hann aðeins fengið á sig 1.94 mörk að meðaltali (í fyrsta sæti), varið 93.3% skota (2. sæti), með 14 sigra (2. sæti) og haldið hreinu í þremur leikjum (1. sæti). Sannarlega glæsileg frammistaða hjá þessum óvenjulega markverði frá Tékklandi.