Fréttir

Total items: 1194

U20 ára úrtakið við æfingar

Dags: 25.11.2005 17:04


Í dag hefjast æfingar hjá þeim hópi leikmanna, sem telur á fjórða tuginn, sem munu berjast um að komast í U20 ára landslið Íslands, en það tekur þátt í Heimsmeistaramóti 3. deildar sem fram fer í Litháen í fyrstu viku janúar. Landsliðsnefnd ÍHÍ gekk frá ráðningu Ed Maggicomo  sem þjálfara U20 landsliðsins. Þetta verður erfið helgi fyrir þessa stráka en það er eftir einhverju að slægjast. Mótherjar Íslands verða Litháar, Búlgarir, Armenar og Tyrkir. Þess má geta að Ísland missti naumlega af sæti í 2. deild á síðasta Heimsmeistaramóti sem fram fór í Mexíkó. Nú er að sjá hvort þeir geti gert betur en þá.