Dags: 08.11.2005 22:56
Í gærkvöldi mætti SR Birninum í Egilshöllinni. Þrátt fyrir að Björninn skoraði fyrsta mark leiksins, og það af ódýrustu gerð, var einsýnt hvaða lið myndi fara með sigur af hólmi þar sem yfirburðir SR voru slíkir. Spurningin var allan tímann sú hvenær myndi Alexi markvörður Bjarnarins yrði yfirbugaður. Þannig buldu skotin á honum allan leikinn án þess þó að SR uppskæri mikið. Eftir fyrstu lotu var staðan 1-1 og eftir aðra lotu 2-3. Þegar hér var komið við sögu hafði SR átt 45 skot að marki en Björninn aðeins 7. Leikurinn endaði svo 5-3 fyrir SR eftir að Björninn hafði bætt við 3. marki sínu sem var hálfgert sjálfsmark hjá SR. Segja má að leikmenn SR hafi farið hvað eftir annað illa að ráði sínu í þessum leik. Oft tókst þeim að halda uppi miklum hraða, sérstaklega fyrsta línan, en án þess að nýta sér færin sem komu í kjölfarið. Þetta er eitthvað sem þeir verða að laga. Sá leikmaður SR sem fór á kostum í þessum leik var Stefán Hrafnsson sem virtist einn átta sig á því hvernig væri best að skora framhjá Alexi. Önnur línan átti líka góða spretti en voru óheppnir að tvö mörk þeirra, er virtust fullkomlega lögleg, voru dæmd af. Þá var Helgi Páll fyrirliði mjög duglegur fyrir liðið ásamt Andy. Þá hafði Zdenek mikla yfirferð og eignaði sér stór svæði, án þess þó að koma því almennilega til skila. Í liði Bjarnarins var hins vegar Alexi sem hélt þeim algerlega á floti með oft á tíðum stórkostlegri markvörslu.
Leikurinn var prúðmannlega leikinn og vel dæmdur af Snorra Sigurðssyni dómara.
Mörk og stoðsendingar SR: Stefán Hrafnsson 4/0, Andy Luhovy 1/1, Gauti Þormóðsson 0/1, Árni Valdi Bernhöft 0/1, Zednik Prohazka 0/1, Mirek Krivanek 0/1, Kári Valsson 0/1.
Mörk og stoðsendingar Bjarnarins: Matthias Nordin 2/0, Magnús Felix Tryggvason 1/0, Guðmundur Borgar Ingólfsson 0/2, Sergei Zak 0/1.