Dags: 02.11.2005 18:43
Á heimasíðu ÍHÍ má lesa að aganefnd ÍHÍ hélt fund í hádeginu í dag þar sem eftirtaldir leikmenn úr leik Bjarnarins og SA frá því laugardaginn 29.10.2005 voru úrskurðaðir í leikbönn:
Leikmaður SA # 25 Lubomir Bobik, einn leikur í bann.
Leikmaður SA #8 Elmar Magnússon, 3 leikir í bann.
Leikmaður Bjarnarins #68 Brynjar Freyr Þórðarsson 3 leikir í bann.
Þjálfari Akureyrar Jan Kobezda 2 leikir í bann.
Þessir úrskurðir aganefndar verða síðan birtir í heild sinni á vef ÍHÍ. Skv. þessum úrskurðum hafa tveir leikmenn verið dæmdir í hámarksrefsingu, þ.e. þriggja leikja bann, í kjölfar hins umtalaða leiks SA og Bjarnarins um síðustu helgi.