Fréttir

Total items: 1194

SR tekur á móti Narfa frá Hrísey um helgina

Dags: 28.10.2005 13:42


_mg_6423.jpg

Meistaraflokkur Skautafélag Reykjavíkur mun taka á móti Narfa frá Hrísey á morgun, laugardag, kl.19:00 í Skautahöllinni í Laugardal. Fyrirfram er búist við áframhaldandi góðu gengi meistaraflokksins sem hefur fran að þessu farið með sigur af hólmi í öllum sínuum leikjum.  En ekki ber að vanmeta þá reynslubolta sem prýða lið Narfa og ekki er útilokað að þeir nái að skrapa saman í þokkalegt lið núna um helgina, svona miðað við skriftir á heimasíðu Narfans.  Litlar breytingar verða í röðum SR þessa helgina, ja nema að Jón Trausti "Mix" mun standa á milli stanganna að þessu sinni þar sem hann hefur verið fjarverandi undanfarinn misseri.

Um helgina er síðan spilaður annar leikur í Íslandsmótinu og það er viðureign Bjarnarins við SA í Egilshöll og hefst sá leikur kl.16:00 á laugardag.