Fréttir

Total items: 1194

3. flokkur byrjar vel

Dags: 22.10.2005 10:51


3_fl_2005.jpg

Íslandsmótið í 3. flokki hefur farið vel af stað hjá strákunum í SR. Í síðustu viku mættu þeir Birninum í Egilshöll og er skemmst frá því að segja að þeir sýndu stórgóðan leik og unnu glæsilegan sigur, 4-2. Góð barátta var í liðinu, samspil gott og leikgleði mikil. Þá var Ævar í markinu mjög góður og hirti það sem hirða þurfti. Í þessum leik var Egill, Styrmir, Ragnar og Tómas með sitt markið hver, og þeir Pétur, Ragnar, Kristján og Egill með eina stoðsendingu. Á fimmtudagskvöldið mættu þeir svo aftur Birninum, en nú í Laugardalnum. Ekki náðu strákarnir að fylgja eftir góðum leik í fyrri viku en leikurinn endaði með jafntefli, 4-4. SR komst tvívegis yfir en alltaf náði Björninn að jafna. Björninn komst svo yfir í 3. lotu, 3-4, en Ragnar náði síðan að jafna leikinn fyrir SR, 4-4, og þar við sat. Bæði liðin léku af krafti en töluvert vantaði upp á að SR-ingar næðu upp sama spili og þeir sýndu í fyrsta leiknum. Þeir voru þó ávallt skeinuhættir í hraðaupphlaupum sínum, sérstaklega er Björninn pressaði stíft undir lok leiksins. Mörk og stoðsendingar SR: Egill 2/0, Kristján 1/0, Ragnar 1/0, Andri 0/1 og Styrmir 0/1.