Fréttir

Total items: 1194

Tveir Tékkar hjá SR

Dags: 26.09.2005 16:30


zdenek_marik.jpg

Í liði SR spila tveir leikmenn sem koma frá Tékklandi en það eru þeir Zdenek Prohacka og Mirek Krivanek. Við þekkjum Zdenek vel frá síðasta vetri er hann lék með liðinu en þetta er varnarmaður með mjög mikla tækni, einsog glögglega kom þá í ljós. Var oft unun á að horfa. Nú hefur félagi hans, sóknarmaðurinn Mirek, bæst í hópinn en þetta er dagfarsprúður sóknarmaður sem leikur fyrir liðið fyrst og fremst. Í fyrsta leik vetrarins var hann markahæstur hjá SR og má búast við því að hann verði enn öflugri er líður á veturinn. Við bjóðum þá velkomna í hópinn.

(Mirek til hægri og Zdenek til vinstri)