Fréttir

Total items: 1194

Þjálfarahornið - nýtt á heimasíðunni!

Dags: 22.09.2005 17:59


Í þessari viku birtist fyrsta "Þjálfarahornið" hjá Ed Maggiacomo aðalþjálfara SR en ætlunin er að íshokkíáhugamenn geti beint spurningum til Eds um íshokkí sem hann síðan svarar í næsta "Þjálfarahorni" (sjá tengil hér til hægri). Í þessu fyrsta Þjálfarahorni svarar hann ýmsum spurningum um leik SR gegn Narfa sl. laugardagskvöld. Þar kemur m.a. fram að hann var nokkuð ánægður með frammistöðu leikmanna SR en að ýmislegt eigi eftir að lagfæra. Þeir sem hafa áhuga á að koma spurningum til hans sendi þær á ed@skautafelag.is