Fréttir

Total items: 1194

Rúnar í SR

Dags: 21.09.2005 17:47


Þá er það orðið ljóst að Norðlendingurinn sterki, Rúnar Freyr Rúnarsson, er genginn í raðir SR en í dag var endanlega gengið frá félagaskiptum hans úr SA í SR. Óhætt er að segja að Rúnar er mikill fengur fyrir SR, stór og mikill rumur sem kann að skora mörk. Um leið er þetta blóðtaka fyrir SA sem sjá á eftir einum sínum sterkasta leikmanni, enda þótt hann hafi ekki leikið allt tímabilið fyrir SA sökum náms, en Rúnar stundar nám í Danmörku. SR-ingar munu taka vel á móti Rúnari þegar hann mætir til leiks.