Dags: 18.09.2005 14:49
Í gærkvöldi tók SR á móti Narfa úr Hrísey í sínum fyrsta leik á tímabilinu. Það ríkti talsverð eftirvænting í loftinu þar sem þetta var fyrsti leikur Eds Maggiacomo, þjálfara SR, og Narfi mætti með vel mannað lið í sinn fyrsta leik. SR-ingar hófu leikinn af miklum krafti og ekki leið nema ein mínúta þar til SR hafði skorað sitt fyrsta mark. SR hélt uppteknum hætti, pressaði Narfa stíft og bættu við þremur mörkum áður en fyrsti leikhluti var úti. Staðan því 4-0 SR í vil. Hér héldu nú flestir að eftirleikurinn yrði auðveldur en það var öðru nær. Strax í upphafi annars leikhluta náði Narfi að skora úr hraðaupphlaupi en SR náði þó að svara fyrir sig með einu marki. Narfi bætti síðan við tveimur mörkum fyrir leikhlé, eftir skelfileg mistök í vörninni, þar af eitt með sjálfsmarki markvarðar. Staðan því 5-3. Eitthvað hefur Ed þjálfari SR lesið hraustlega yfir sínum mönnum í leikhléi því miklu frískara lið mætti til leiks í þriðja leikhluta. SR fór að spila betur saman, jók hraðann og pressaði betur án þess að skilja eftir lausan framherja Narfa við bláu línuna. Ákveðni og einbeiting SR skilaði sér fljótt því þeir röðuðu inn mörkunum, oft eftir stórgott samspil og áður en yfir lauk voru mörkin orðin sjö. Leiknum lauk því 13-3 SR í vil.
Það er óhætt að segja að þessi byrjun SR sé ágætt, sérstaklega í ljósi þess að SR átti í miklu basli með Narfa í sínum fyrsta leik gegn liðinu á síðasta tímabili, en þeim leik lauk með jafntefli, 3-3. SR pressaði stíft allan leikinn en Narfi lék af mikilli skynsemi, bakkaði vel en hélt þó ávallt opnum möguleikanum á hraðaupphlaupi með því að halda oft einum leikmanni mjög framarlega. Þessu leikkerfi, nánast 4 í vörn og einn frammi, má líkja við leikkerfi íslenska fótboltalandsliðsins á árunum áður þegar einmana framverði var haldi frammi upp á von og óvon. En þetta getur virkað, sérstaklega ef vörnin sofnar á verðinum einsog gerðist nokkrum sinnum hjá SR í þessum leik, og reynlsuboltarnir í Narfanum kunna þá list að nýta færin sín og mistök andstæðingsins. Vörn SR átti það til að spila alltof framarlega og segja má að þessi glannaskapur hafi gefið Narfanum 3 mörk á silfurfati. Hafa verður þó í huga að SR missti fyrir þetta tímabil tvo sína sterkustu varnarmenn, þá Ingvar Jónsson og Ágúst Ásgrímsson, og það mun taka einhvern tíma að fylla þau skörð sem þeir skyldu eftir sig. En SR býr vel að ungum og mjög efnilegum varnarmönnum sem munu klára þetta dæmi í vetur. Sókn SR er hins vegar beitt og tilkoma hins nýja tékkneska leikmanns SR, Mireks Krivaneks, gerir hana enn beittari. Leikurinn var í íþróttaanda, engin ljót brot og allir leikmenn í andlegu jafnvægi. Við skulum vona að svo verði áfram í leikjum vetrarins.
Eftir leikinn komu saman í félagssal SR allir leikmenn SR, þjálfarar og áhugasamir SR-ingar til að fagna sigri og þjappa hópnum saman. Verður slíkt gert eftir alla heimaleiki liðsins í vetur.
Mörk og stoðsendingar SR: Mirek Krivanek 4 (1), Þorsteinn Björnsson 2 (2), Stefán Hrafnsson 2 (1), Gunnlaugur Karlsson 1 (1), Úlfar Andrésson 1 (1), Steinar Páll Veigarsson 1 (1), Sindri Már Björnsson 1, Guðmundur Björgvinsson 1, Zdenek Prokaska (4), Þórhallur Viðarsson (1).
Mörk og stoðsendingar Narfa: Helgi Gunnarsson 1 (1), Elvar Jónsteinsson 1, James Devine 1 og Sigurður Sveinmarsson (1).