Dags: 14.09.2005 09:42

Fráfarandi fyrirliði meistaraflokks Skautafélags Reykjavíkur skrifaði undir félagaskiptin sín í gær. Ingvar mun spila með Gladsaxe Bears í Kaupmannahöfn á komandi vetri. Ingvar hefur sótt æfingar hjá þeim núna undanfarinn misseri og lætur vel af. Hann er að sjálfsögðu settur í vörnina þar sem hann hefur unað vel við sitt undan farinn ár.
Hann og Jónas Breki Magnússon, sem einnig spilar með Gladsaxe Bears, eiga eflaust eftir að fara mikinn þar ytra í vetur. Við óskum Ingvari til hamingju með félagaskiptin og óskum honum alls hins besta.