Fréttir

Total items: 1194

Skautabúðir SR byrjaðar

Dags: 09.08.2005 18:29


3saman.jpg

Í dag var fyrsti dagur Skautabúða SR en að þeim standa báðar deildir félagsins. Í morgun hófu leikinn yngstu leikmennirnir í íshokkídeildinni og var ekki annað að sjá en þeir hafi engu gleymt enda skein áhuginn úr hverju andliti. Í kvöld hefjast svo skautabúðir eldri leikmanna en eftir hádegi stigu listhlauparar á ísinn. Þátttakan í Skautabúðunum er góð en með tilkomu Ed Maggiacomo yfirþjálfara verður hægt að byggja upp sterkar búðir sem verður hluti af sumardagskrá allra íshokkíleikmanna í framtíðinni - þetta er bara upphafið. Ed til aðstoðar eru Kanadamennirnir Peggy, sem sér um "power scating" æfingar, og George sem sér um þrekþjálfun. Auk þess er Berglind Ólafsdóttir aðstoðarþjálfari. Skautabúðunum lýkur svo á þriðjudaginn í næstu viku.