Dags: 27.07.2005 00:33
Eins og glöggvir lesendur heimasíðu SR hafa tekið hefur íshokkídeildin og listhlaupadeild SR sameinast um eina og sömu heimasíðuna, skautafelag.is. Er þetta liður í því að auka tengsl milli deilda og styrkja stoðir félagsins. Ýmislegt annað er á döfinni þar sem báðar deildir koma að sbr. samrekstur um Skautabúðir sem hefjast þann 9. ágúst, ásamt nýjum lögum félagsins en báðar deildir munu fjalla um þau áður en þau verða borin undir atkvæði á framhaldsaðalfundi SR í lok ágúst. Auk þess ber að nefna að ráðin verður starfsmaður til SR í hlutastarf fyrir næsta vetur sem sinna mun báðum deildum. Er vonast til að sú nýbreytni, sem kemur í kjölfar samstarfssamnings við Reykjavíkurborg, mun létta mjög starfið hjá félaginu.