Dags: 12.07.2005 14:06
Dagana 9. til 16. ágúst verður SR með skautabúðir fyrir byrjendur og lengra komna í íshokkí og listskautum. Hjá íshokkídeildinni verður hinn kanadíski Ed Maggiacomo yfirþjálfari, en Ed var nýlega ráðinn sem aðalþjálfari íshokkídeildar SR fyrir næsta vetur. Ed hefur mikla reynslu í að starfrækja íshokkískóla, bæði í Danmörku og Kanada, og kemur til með að brydda upp á ýmsum nýjungum í þjálfuninni. Honum til aðstoðar verða þau Peggy McLeod frá Kanada, sem mun sjá um svokallaða "puwerscating" þjálfun, og svo George McLeod frá Kanada, sem mun sjá um þolþjálfun. Allt eru þetta þrautreyndir þjálfarar og mikill hvalreki fyrir íshokkídeildina. Auk þess verða íslenskir aðstoðarþjálfarar þeim til halds og trausts. Tvö námskeið verða haldin og er þátttökugjaldi stillt í hóf, eða einungis 7.500 á mann (veittur er systkinaafsláttur).
Námskeið 1: Kl. 8:30 - 12:30 - Fyrir krakka fædda 1992 og yngri, jafnt byrjendur sem lengra komna. Þátttakendum skipt í hópa eftir aldri og getu. Sex daga námskeið, byrjar þriðjudaginn 9. ágúst.
Námskeið 2: Kl. 17:00 - 20:00 - Fyrir þá sem fæddir eru 1991 og eldri. Þátttakendum skipt í hópa eftir aldri og getu. Sex daga námskeið, byrjar þriðjudaginn 9. ágúst.
Sjá skráningarform á aðalsíðu.