Dags: 06.07.2005 17:32
Aganefnd Alþjóðaíshokkísambandsins (IIHF) hefur dæmt Hvít-Rússann Tsimafei Filin í tveggja ára keppnisbann vegna notkunar á steralyfinu nandrolone, sem er á bannlista IIHF. Tsimafei sem var í liði Hvít-Rússa í heimsmeistaramótinu í Vín í vor lennti í úrtaki lyfjanefndar IIHF og reyndust bæði A og B sýni hans jákvæð. Með dómi þessum sendir IIHF skýr skilaboð um það að notkun ólöglegra lyfja er ólíðandi innan íshokkíhreyfingarinnar, og að hart verði tekið á slíkum tilvikum.