Fréttir

Total items: 1194

Samstarfssamningur undirritaður

Dags: 30.06.2005 22:09


Samningar2.jpg

Í dag var stór stund hjá Skautafélagi Reykjavíkur er undirritaður var samstarfssamningur milli SR, Íþrótta- og tómstundaráðs og Íþróttabandalags Reykjavíkur um rekstur íþróttastarfs SR og notkun mannvirkja. Undirritunin fór fram í Ráðhúsinu að viðstöddum borgarstjóra en um 16 íþróttafélög gengu frá sambærilegum samningi við þessa aðila í dag. Þessi samningur er kærkominn, fjárhagslegur rammi utan um allt starf SR, stöðu þess, skyldur og starfssvæði. Í samningnum er m.a. tryggður fastur fjárstuðningur frá Reykjavíkurborg til ársins 2008 og leigugreiðslur fyrir aðstöðuna í Skautahöllinni og ístíma. Skilgreint er starfssvæði SR sem er Reykjavík vestan Elliðaáa ásamt Breiðholtshverfi. Ennfremur er sú nýbreytni að ÍTR mun styrkja SR til auka þjónustu sína með því að ráða starfsmann á skrifstofu í hlutastarf sem sinna mun ýmsum störfum fyrir félagið og deildirnar tvær. Óhætt er að segja að ÍBR, ÍTR og Reykjavíkurborg hafi staðið myndarlega að þessum samningum enda fagna SR-ingar þessu framtaki. Samningur þessi verður kynntur frekar á framhaldsaðalfundi SR sem haldinn verður seinni hluta ágústmánaðar.