Fréttir

Total items: 1194

Skautabúðir í ágúst

Dags: 19.06.2005 16:29


Á undanförnum vikum hefur verið unnið að því að undibúa skautabúðir fyrir íshokkí og listskauta á vegum SR. Stefnt er að því að námskeiðin byrji þriðjudaginn 9. ágúst og standi til 16. ágúst. Á íshokkínámskeiðunum mun Ed Maggiacomo, nýráðinn aðalþjálfari hjá íshokkídeild SR, hafa umsjón með námskeiðunum en hann hefur áratuga reynslu af starfrækslu íshokkískóla, bæði í Danmörku og í Kanada. Auk þessi verður fenginn til landsins svokallaður "power skating" kennari frá Kanada, en hann mun bæði leiðbeina á íshokkí og listskauta námskeiðunum. Nánari upplýsingar um þessar skautabúðir verða birtar hér á heimasíðunni um leið og allt skipulag liggur fyrir.