Dags: 10.06.2005 10:13
Í gærkvöldi var haldinn aðalfundur SR í húsakynnum ÍSÍ að Engjavegi. Fráfarandi formaður SR, Ingibjörg Heiðrún Sigfúsdóttir, gaf ekki kost á sér til endurkjörs, en í hennar stað var Björn Örvar kosinn nýr formaður SR. Auk þess var Elísabet Eyjólfsdóttir endurkjörinn gjaldkeri og Sigrún Mogensen kosinn ritari. Aðrir í stjórn eru svo Ásta Þórhallsdóttir, formaður íshokkídeildar, og Ástríður Vigdís Traustadóttir, formaður listhlaupadeildar. Á aðalfundinum voru lögð fram drög að nýjum lögum fyrir félagið og var samþykkt að báðar deildir fengju þau til yfirlestrar í sumar, en að drögin yrðu síðan lögð fram á framhaldsaðalfundi sem haldinn verður í ágúst. Ný stjórn kemur fljótlega saman til fundar, en framundan eru ýmis spennandi verkefni, m.a. undirritun á samstarfssamningi við við Reykjavíkurborg, ÍTR og ÍBR, og samstarf beggja deilda um sumarskautabúðir í ágúst.