Dags: 26.05.2005 23:25
Alþjóða íshokkísambandið hefur birt dagskrá HM móta fyrir árið 2006. Dagskráin er ekki fullfrágengin en þar má m.a. sjá að U20 ára lið okkar fer til Litháen og U18 ára lið okkar annað hvort til Ítalíu eða þá Litháen. Karlaliðið fer ekki langt því 3. deildar mótið verður á Íslandi, en ekki er orðið ljóst hvert kvennalið okkar fer. Mótadagskrá landsliða má sjá hér.