Fréttir

Total items: 1194

Nýr þjálfari ráðinn til SR

Dags: 23.05.2005 14:15


Ed (1).jpg

Á dögunum var undirritaður samningur við Kanadamanninn Ed Maggiacomo um að taka að sér yfirþjálfun hjá íshokkídeild SR næstu tvö tímabil. Ed mun vera í heilsárs starfi hjá SR og því geta séð um alla undirbúningsþjálfun og þrekæfingar fyrir tímabilið, ásamt því að sjá um allt skipulag og framkvæmd á íshokkískóla SR, sem auglýstur verður seinna í sumar. Ed mun koma til Íslands, ásamt konu sinni Carol, í lok júlí. Ed hefur mikla reynslu sem íshokkíþjálfari, hefur þjálfað bæði í Kanada og svo í Danmörku sl. 10 ár. Hann er m.a. þjálfari danska kvennalandsliðsins sem nú leikur í efstu deild. Við óskum honum velfarnaðar í starfi og væntum þess að hann muni láta mikið af sér kveða í starfi hjá SR, enda hokinn af reynslu og áhuga.