Fréttir

Total items: 1194

Þriðja deild karla leikin á Íslandi í apríl 2006

Dags: 19.05.2005 17:23


iihf_emblemq_no.jpg

Á heimasíðu ÍHÍ kemur fram að á fundi Alþjóða íshokkísambandsins (IIHF) nú í byrjun maí hafi verið ákveðið að úthluta Íslendingum mótahaldi í þriðju deild karla, en leikið verður í apríl 2006. Tveir umsækjendur voru um þessa keppni, Ísland og Luxemburg, en samþykkt var með yfirburðum að veita Íslandi réttinn, eða 79 athvæði gegn 13. Líklegt má telja að vel heppnaðar keppnir hér árin 2000 og 2004 hafi þarna haft mikið að segja, en mikil ánægja hefur var með þessi mót. Á fundi IIHF var líka samþykkt nýtt vörumerki (sjá hér til hliðar) fyrir sambandið.