Dags: 17.05.2005 09:19

Tékkar urðu heimsmeistarar í íshokkí árið 2005 er þeir lögðu Kanada að velli í úrslitaleiknum í Vín í Austurríki, 3-0. Þrátt fyrir að Kanadamönnum tækist ekki að skora var leikurinn frekar jafn allan tímann en munurinn lá í því að Tékkum tókst að skapa sér dauðafæri sem þeir nýttu vel. Kanada tókst hins vegar ekki að opna vörn Tékka að neinu ráði og þurftu því að klára sóknirnar með skotum, oft úr þröngum færum, sem markmaður Tékka, Tomas Vokoun, réð nokkuð auðveldlega við. Tékkar skoruðu fyrsta mark sitt á 5. mín í fyrstu lotu en þar var að verki Vaclav Prospal eftir góðan undirbúning og snilldarsendingu frá Jaromir Jagr. Eftir markið opnaðist leikurinn mjög og liðin skiptust á að sækja. Tékkar tóku vel við pressu Kanadamanna og létu hinn líkamlega styrk Kanadamanna ekki bera sig ofurliði, heldur nýttu léttleikandi spil, góða sendinga- og kylfutækni til spila sig út úr pressunni, sérstaklega í annarri lotu þegar pressa Kanada var mjög mikil. Bestu færi Kanadamanna í þessariu lotu komu í "power-play" en Tomas Voukun í markinu var vel vakandi þegar á reyndi. Í upphafi þriðju lotu átti Jaromir Jagr enn eina snilldarsendinguna,þvert yfir ísinn við bláu sóknarlínuna á Martin Rucinsky sem skaut þrumuskoti í fjærvinkilinn, án þess að Martin Brodeur réði við. Staðan þá 2-0, Tékkum í vil. Eftir þetta tóku Kanadamenn að brjóta kjánalega af sér, misstu máttarstólpana í refsiboxið, einsog Joe Thornton og Rick Nash. Þegar tæpar tvær mínútur voru eftir af leiknum, tóku Kanadamenn Martin Brodeur úr markinu til að bæta inn auka sóknarmanni. En allt kom fyrir ekki - Tékkar bættu þriðja markinu við með skoti þvert yfir völlin í autt markið þegar um 15 sek voru eftir. Tékkar fögnuðu gríðarlega og enn einn Heimsmeistaratitilinn var í höfn en síðast urðu þeir Heimsmeistarar 2001.