Fréttir

Total items: 1194

HM í íshokkí á RÚV um helgina !!

Dags: 13.05.2005 11:14


maximafinogenov.jpg

Núna um helgina verða úrslitaleikirnir á HM í íshokkí spilaðir en Tékkar, Rússar, Svíar og Kanadamenn unnu sér sæti í úrstlitakeppnina. Okkur til ánægju verða þessir leikir sýndir á RÚV. Dagskráin er sem hér segir:

Undanúrslit 1
Laugardaginn 14.maí kl.14:00 - Rússland gegn Kanada (beint)

Undanúrslit 2
Laugardaginn 14.maí kl.00:00 - Svíþjóð gegn Tékklandi (upptekið)


Tapliðin úr þessum viðureignum mætast síðan á sunnudeginum kl.14:00 um bronsið og verður sá leikur sýndur beint á RÚV. Sigurliðin mætast hins vegar kl.18:15 í úrslitaleiknum um gullið en sá leikur verður sýndur kl.00:00, eftir hefðbundna dagskrá hjá RÚV. Helgi Páll Þórisson, leikmaður meistaraflokks SR, verður íþróttafréttamönnum RÚV til halds og traust við lýsingarnar á þessum leikjum.