Dags: 27.04.2005 10:50
Í gærkvöldi mættust SR og SA í þriðja leiknum um Íslandsmeistaratitilinn en þessi leikur fór fram í Laugardalnum. Að þessu sinni náði SR að tefla fram sínu sterkasta liði því Zdenek og Gauti Þormóðsson komu úr banni og varnarankerið Ágúst Ásgrímsson lék sinn fyrsta leik eftir slæm meiðsli í febrúar. Á upphafsmínútunum mátti greina að SR-ingar voru nokkuð utangátta, sendingar slæmar og móttaka einnig, og lítill hraði á leikmönnum. SA hóf leikinn strax af mikilli festu, léku góðan varnarleik og pressuðu stíft þegar við átti. Þessum leikstíl fylgdi þó mikið af krækjum, fellum, og fangbrögðum þannig að leikmenn SA þurftu oft að heimsækja refsiboxið. En það virtist ekki há SA því SR-ingar tókst ekki að færa sér liðsmuninn í nyt, létu SA stöðva sóknirnar strax á bláu línunni, þannig að SR náði sjaldan góðum skotfærum. SA tókst síðan að ná forystunni eftir mikil varnarmistök hjá SR. Staðan 0-1 eftir fyrstu lotu. Í annarri lotu hélt SA uppi stífri pressu sem gaf þeim tvö mörk, og aftur eftir varnarmistök SR. Eftir þriðja markið tóku SR-ingar töluvert við sér og á 38. mín tókst Úlfari Þormóðssyni að brjóta ísinn með glæsilegu marki, en þá höfðu SR-ingar pressað nokkuð stíft. Rúmlega mín seinna bætti svo Zdenek öðru marki við fyrir SR og staðan því orðin 2-3 SA í vil. Nú gat í raun allt gerst en skömmu fyrir leikhlé tókst þó SA að bæta við marki. Staðan fyrir þriðju lotu því 2-4. Í þriðja leikhluta náði SR oft upp ágætis spili en þétt og mjög skipulögð vörn SA hélt lengi vel. Á 6. mín slapp Zdenek inn fyrir vörn SA og skoraði af miklu öryggi eftir að hafa leikið markvörð SA grátt. Nú héldu margir að SR myndi ná að jafna leikinn, enda virtist sem nokkuð væri af leikmönnum SA dregið eftir mikla keysrlu á fáum leikmönnum. En eftir mikil varnarmistök hjá SR, þegar 10 mín voru eftir af leiknum, skoraði SA auðvelt mark. Staðan 3-5. Í kjölfarið fjaraði undan leik SR og SA gat farið norður með tvo sigra í einvíginu gegn einum sigri SR.
Leikmenn SR komu alls ekki nógu vel stemmdir til þessa leiks; voru oft óöruggir í spilinu, keyrðu alltof seint upp hraðann og gerðu auk þess sig seka um mörg mistök í vörninni. Sérstaklega var áberandi óöryggið hjá eldri og reyndari leikmönnum liðsins. Áberandi bestir hjá SR voru þeir Zdenek og Úlfar, og Trausti stóð fyrir sínu í markinu. SR getur gert mikið betur og þeir fundu það í þriðja leikhluta að þeir geta vel unnið þetta endurbætta SA lið, haldi þeir uppi þeim hraða og baráttu sem einkennt hefur liðið í vetur. Hjá SA voru hinir reyndu Slóvakar í liðinu sem áttu góðan leik, og þá sérstaklega með leikskipulagi og staðsetningum. Auk þess átti Jón Gíslason góðan leik að vanda sem og Michael markvörður þeirra.
Mörk SR: Zdenek 2, Úlfar 1 og Gauti með 2 stoðsendingar.
Mörk SA: Tibor 2, Jan 1, Clark 1, Jón 1 og Rúnar 1.