Fréttir

Total items: 1194

SA jafnaði einvígið

Dags: 25.04.2005 07:37


Á laugardagskvöldið fór fram annar leikurinn um Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí er SR heimsótti. Fyirfram var búist við því að SA myndi selja sig dýrt í þessum leik og ekki bætti úr skák að SR gat ekki teflt fram þeim Zdenek og Guata sem tóku út leikbann. SA byrjaði með látum og vann fyrstu lotuna 4-0, þá aðra 2-0 en í þeirri þriðju rétti SR aðeins úr kútnum og lauk henni 2-2. SA vann því leikinn 8-2. Mörk SR: Ingvar 1 og Úlfar 1. Þessi lið mætast svo í þriðja leiknum á þriðjudagskvöldið kl. 20:00.