Dags: 21.04.2005 10:26
Í gærkvöldi fór fram fyrsti leikurinn í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí karla er SR mætti SA í Laugardalnum. Er skemmst frá því að segja að SR-ingar lögðu Akureyringana í bráðskemmtilegum, hröðum leik, 9 - 6. SA skoraði fyrsta markið þegar 11 mín voru liðnar, hálfgert sjálfsmark. Eftir markið pressuðu SA stíft en Stefáni Hrafnssyni tókst þó að jafna leikinn á 15. mín. án stoðsendingar. Zdenek bætti síðan öðru marki við fyrir SR með glæsilegu einspili upp allan ísinn. Gauti Þormóðsson skoraði svo þriðja mark SR með ótrúlegu skoti frá batta 9 sek við fyrir leikhlé. Í annarri lotu kom Gauti SR í 4-1 eftir stoðsendingu frá Zdenek og Ingvar Þór Jónsson skoraði síðan 5. markið fyrir SR með þrumuskoti eftir stoðsendingu frá Zdenek. Og ekki voru þeir hættir hjá SR því Gauti kom SR í 6-1 í hraðaupphlaupi, eftir stoðsendingu frá Kára Valssyni. Þegar hér var komið sögu héldu nú flestir að allur vindur væri úr norðanmönnum en það var öðru nær. Eftir röð mistaka í vörn SR tókst SA að minnka muninn í 6-4 á aðeins tveimur mínútum, fyrst með glæsilegu skoti frá Jóni Gíslasyni, síðan með marki frá Tibor Tatar og svo aftur með góðu skoti frá Jóni. SA var staðráðið að bíta frá sér. Á þessum kafla gekk ekkert hjá SR og pressa SA mikil. Það var því mikill léttir fyrir stuðningsmenn SR er Þórhallur Viðarsson skoraði stórgott mark með eldsnöggu viðbragði, eftir stoðsendingu frá Þorsteini Björnssyni, eftir góða pressu á mark SA. Staðan því 7-4 fyrir SR. Tibor lagaði þó stöðuna fyrir SA í 7-5 fyrir leikhlé. Baráttan hélt áfram í þriðju lotu en þó var eins og aðeins væri dregið af norðanmönnum, enda spiluðu þeir nær eingöngu á tveimur línum. Þó tókst þeim að bæta við marki og var þar aftur á ferðinni Rúnar Rúnarsson. Helgi Páll Þórisson gerði þó drauma norðanmanna um sigur í þessum leik að engu með lúmsku skoti án stoðsendingar, eftir mikla baráttu og eftirfylgni. Staðan 8-6 fyrir SR. Skömmu seinna fékk SA síðan 4 mín "power-play" sem þeim tókst ekki að nýta - einhvern neista vantaði í liðið. Gauti gekk síðan frá þessum leik 5 mín fyrir leikslok með bylmingsskoti eins og þau gerast best. SR sigur í höfn, 9-6.
SR lék lengst af geysilega vel í þessum leik, baráttan gífurleg og stemningin góð. SR tefldi fram óbreyttu liði frá því í vetur nema hvað Ágúst Ásgeirsson, varnarjaxlinn, og Steinar Páll Veigarsson voru fjarri góðu gamni. Þeir virtust ekki hafa neina vanmáttarkennd gegn hinu öfluga lið SA. Allir leikmenn lögðu sig fram en ekki verður hjá því komist að nefna stórleik Ingvars í vörninni. Barátta hans og kraftur var aðdáunarverð og virkaði greinilega sem vítamínsspauta fyrir liðið. Aðrir í vörninni, einsog Kári og Guðmundur Björgvinsson voru geysilega sterkir, og gríðarleg varnarbarátta Úlfars, sem lék á línu með Gauta, gaf Gauta einstakt tækifæri á að nýta sóknarhæfileika sína, en hann skoraði 4 mörk í þessum leik. Svo skipti máli að SR gat teflt fram þremur línum sem er mikilvægt í svona hröðum leik og hörðum. Ungu strákarnir í liði SR eru að fá dýrmæta reynslu sem á eftir að skila SR enn sterkara liði í framtíðinni.
SA tefldi fram nokkuð breyttu liði frá því í vetur því nú gátu norðanmenn stillt upp tveimur sterkum línum með heimsókn þeirra Jóns Gíslasonar og Rúnars Rúnarssonar, auk þess að Jan Kobezda var mættur aftur til leiks. Í þessum leik sýndi Jón Gísla enn og aftur hversu mikill íshokkíleikmaður hann er, en hann var yfirburðarmaður í liði SA í þessum leik. Að vanda var Tibor hættulegur en það var ekki nóg. Staðan í einvíginu er nú 1 - 0, SR í vil. Næsti leikur er á Akureyri á laugardaginn og það er alveg ljóst að SA mætir þar staðráðið í að gera betur. Spennandi einvígi er rétt að byrja!