Dags: 13.04.2005 15:07
Í gærkvöld lék 3. flokkur SR síðasta leik sinn í Íslandsmótinu er þeir mættu Birninum B-liði. Leikurinn fór fram í Egilshöll en honum lauk með stórum sigri SR. Þar með lauk SR tímabili sínu formlega og um leið unnu þeir Íslandsmeistaratitilinn í 3. flokki. Árangur þeirra er glæsilegur þar sem þeir unnu 11 leiki en töpuðu aðeins einum leik. Til hamingju með þetta! Ekki fengu þeir þó afhentan sigurbikarinn eftir leikinn þar sem ÍHÍ var ekki með hann tilbúinn. Úr því verður þó bætt seinna því hann verður afhentur í leikhléi í fyrsta úrslitaleiknum í meistaraflokki, milli SR og SA. Nánar um það seinna.