Fréttir

Total items: 1194

Karlalandsliðið lenti í kröppum dansi

Dags: 10.04.2005 23:17


Því miður fór það svo að Íslandi tókst ekki að halda sér í annarri deild á heimsmeistaramótinu sem lauk um helgina í Belgrad. Ísland tapaði síðasta leik sínum, 2 - 4, fyrir besta liðinu Ísrael sem fer beina leið upp í fyrstu deild. Enda þótt Ísland hafi unnið glæsilega sigur á N-Kóreu dugði það ekki til. Segja má að frekar óhagstæð úrslit í öðrum leikjum, ásamt því að hafa tapað mjög jöfnum leikjum, einsog gegn Belgíu, hafi ráðið úrslitum. Þrátt fyrir þetta er árangur þessa liðs mjög góður og óhætt að fullyrða að aldrei höfum við geta teflt fram eins sterku liði og nú. Úrslit leikjanna gefa líka til kynna að framfarir hafi orðið miklar á Íslandi; núna erum við ekki lengur teknir í bakaríðið af löndum einsog Belgíu eða Spáni, heldur eigum í fullu tré við þessar þjóðir. Árangur okkar gegn svo Ísrael, 2 - 4 tap, sem fór létt upp í fyrstu deild, sýnir að okkur vantar aðeins herslumuninn á að tryggja stöðu okkar í annarri deild. Við komum þó varla til með að staldra lengi við í þriðju deild - varla með þennan mannskap.