Fréttir

Total items: 1194

4. flokkur SR Íslandsmeistari

Dags: 11.04.2005 09:11


4fl-Islandsmeistari2005.JPG

Um helgina lauk þriðja og síðasta móti vetrarins í 4. flokki, en samanlagður árangur á öllum þessum mótum réð því hver hvaða lið stæði uppi sem Íslandsmeistari í þessum aldursflokki. Það er skemmst frá því að segja að SR 4A tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn á glæsilegan hátt, unnu alla leiki sína á þessum mótum og hlutu 24 stig. Í öðru sæti var Björninn með 12 sig og SA síðan með 2 stig. Lið SR er mjög vel mannað, með sterka einstaklinga og góða liðsheild. Oft á tíðum léku þeir mjög vel saman og baráttuandinn óbilandi. Í flokki B-liða var keppnin mun jafnari. SR-B1 vann mótið um helgina en það dugði ekki til þar sem Björninn vann keppni B-liða í samanlögðum árangri eftir harða keppni við SA og SR. Við óskum þessum strákum til hamingju með titilinn.