Dags: 05.04.2005 16:24
Þriðja og síðasta mót vetrarins í 4. flokki, Laugardalsmótið, fer fram um næstu helgi, en SR heldur þetta mót. Laugardalsmótið hefst þó á morgun, miðvikudag, með tveimur leikjum (dagskrá hér til hliðar á hægri spássíu). Fyrri leikurinn hefst kl. 19:45 en þá leikur SR-A við Björninn-A. Strax að honum loknum, eða kl. 20:40 leika síðan innbyrðis SR-B1 og SR-B2, en SR sendir 3 lið í þessa keppni og Björninn og SA tvö lið.