Dags: 04.04.2005 22:26
Íslenska kvennalandsliðið lauk þátttöku sinni á heimsmeistaramótinu með því að ná jafntefli gegn Nýja-Sjálandi í síðasta leik sínum, 4-4. Nýja-Sjáland komst í 3-1 en stelpurnar sýndu mikinn kraft og skoruðu næstu 3 mörk, og staðan því 4-3 Íslandi í vil. Nýja-Sjálandi tókst síðan að jafna leikinn á síðustu sekúndu leiksins. Engu að síður glæsileg frammistaða hjá íslensku stelpunum.
Íslenska karlalandsliðið, sem nú leikur í 2. deild, mætti í dag Belgum í fyrsta leik sínum í heimsmeistaramótinu sem nú fer fram í Belgrad í Serbíu. Leikurinn var mjög jafn og spennandi en lauk með naumum sigri Belga, 4-3. Jón Gíslason gerði 2 mörk og Birkir Árnason 1 mark. Ísland lék ágætlega og var, skv. heimildum, óheppið að ná ekki sigri. En þessi byrjun lofar góðu fyrir landsliðið okkar.