Dags: 06.03.2005 13:36

Í dag lauk Laugardalsmóti yngri flokka með verðlaunaafhendingu og pizzuveislu. Mótið hófst á föstudagskvöldið en SA , SR og Björninn sendu samtals 13 lið til keppni. Leikirnir voru oft á tíðum mjög spennandi og greinilegt að mikil uppbygging hefur átt sér stað hjá félögunum í yngri flokka starfinu. Nokkur óvænt úrslit litu dagsins ljós og ljóst að enginn leikur vinnst fyrirfram. Skipulag mótsins tókst mjög vel, tímasetningar stóðust og vonandi að allir hafi farið glaðir heim, enda gerðu leikmenn sitt besta. Allir fengu verðlaun í lokin auk þess að veitt voru verðlaun fyrir mestu snyrtimennskuna í klefum, en þau verðlaun hlutu SA-ingar. Óhætt er að segja að mót af þessu tagi gera mikið fyrir íshokkíið og það fer vel á því að öll félögin haldi slíkt mót, en næsta mót er í Egilshöllinni um miðjan apríl. SR vill þakka Birninum og SA fyrir skemmtilegt mót. Auk þess vill SR þakka foreldrum í SR fyrir góða aðstoð á mótinu en sérstaklega ber að þakka Láru Sigurþórsdóttur fyrir frábært starf við undirbúning og skipulag þessa móts.