Dags: 04.03.2005 12:10
Búið er að boða leikmenn til æfingabúða fyrir karlalandslið Íslands í íshokkí. SR-ingar geta verið stoltir af því að alls eru 12 leikmenn af 28 í þessum hóp sem fær að spreyta sig helgina 11. til 13. mars.
Leikmenn SR eru:
Jón Trausti Guðmundsson
Birgir Örn Sveinsson
Ingvar Þór Jónsson
Guðmundur Björgvinsson
Kári Valsson
Þórhallur Viðarsson
Stefán Hrafnsson
Helgi Páll Þórirsson
Árni Valdi Bernhöft
Gauti Þormóðsson
Steinar Páll Veigarsson
Úlfar Andrésson
Er þetta góð blanda af gamalreyndum jöxlum og ungum og ferskum leikmönnum og verður gaman að sjá hvernig til tekst með landsliðið undir stjórn Stanislavs Berger landsliðsþjálfara.
Hægt er að sjá listann í heild sinni á www.ihi.is